Gamla fólkið á elliheimili úti á landi var orðið afar þrúgað og meðtekið af efnahagsbölsýninssisíbyljunni í fjölmiðlunum.
Forstöðukonan hafði miklar áhyggjur af þessu.
Í morgun var leikfimi á heimilinu, forstöðukonan bað íþróttafræðinginn að vera nú heldur á léttu nótunum og fyrir alla muni ekki minnast á efnahagsmál eða þrengingar.
Þetta færi alveg að fara með gamla fólkið.
Íþróttafræðingurinn sagði það ekki nema sjálfsagt.
Svona hóf hann tíman :
Kæru vinir !
Í dag byrjum við á mjög léttri æfingu.
Við réttum hendur út frá hliðunum, beygjum olnbogana og bönkum flötum lófum létt á bringuna, síðan réttum við úr höndunum og kreppum snöggt hnefana og endurtökum allt aftur og aftur, " og svo hrópaði hann :
"Koma svo !
Banka-kreppa, banka-kreppa, banka-kreppa...........! "
Flokkur: Spaugilegt | 9.11.2008 | 13:48 (breytt 15.11.2008 kl. 00:46) | Facebook
Tenglar
Mínir tenglar
Tónlist
Ýmislegt
Gestir
Tónlist
- A Glimpse in Time - Gulli Falk ft. Diddú and Stefán Jakobsson
-
Tónlist
-
Elska þig enn. Stefán Jakobsson
youtube
Athugasemdir
takk for indbydelsen gammen að lese dit blogg kv
óli þrö (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 21:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.