Það er ekki oft sem fólk getur mætt á stuttbuxum og ermalausum bol í réttir en það gerðist í gær í dásamlegu veðri og 17-20 stiga hita.
Fjölmenni var, allt frá ungbörnum upp í fólk yfir nírætt. Og allir skemmtu sér vel. enda alltaf gaman að sýna sig og sjá aðra.
Konur úr slysavarnadeildinni Hring buðu upp á hefðbundið íslenskt kaffihlaðborð, einnig pylsur, gos og sælgæti, eins og venjulega öllum til ánægju og yndisauka
Reykjahlíðarrétt er merkilegt mannvirki. Réttin er öll hlaðin úr grjóti og mun elsti hluti hennar hafa verið gerður kringum 1880-85.
Til leiðbeiningar fyrir ferðamenn, eftir Gísla Pétursson 1948.
Stutt lýsing á Mývatnssveit.
Reykjahlíðarrétt.
Þegar kemur norður úr hrauninu, eru nýræktir frá Reykjahlíð á vinstri hönd, en hægra megin er fjárrétt hlaðin úr grjóti. Til þeirrar réttar er smalað allt Reykjahlíðarland, en það nær frá Mývatni rétt austan við Grímsstaði, norður um Bóndhól vestan við Gæsafjöll og austur norðan við þau um fjallið Eylíf í Dettifoss og síðan suður með Jökulsá eins langt og grös gróa, eða með öðrum orðum, suður að Vatnajökli. Nú kemur á réttina aðeins fé að bæjunum norðan og austan Mývatns, en áður kom þangað fjöldi fjár úr lágsveitum sýslunnar.
Bloggar | 6.9.2010 | 16:36 (breytt 16.9.2010 kl. 21:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvað er Úlfaldinn?
Um Úlfaldann ...
Hljómsveitarlisti 2010
Föstudagur hefst kl. 19:00
Tom Hannay (UK)
Árstíðir
Kiriyama family
Nögl
Thingtak
Endless dark
Laugardagur hefst kl 18:00
Baggabandið
Of monsters and men
Some shape to enter (DK)
Bróðir Svartúlfs
Nevolution
Cliff Clavin
Jan Mayen
Agent Fresco
Bloggar | 6.7.2010 | 13:37 (breytt 5.9.2010 kl. 22:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þingmenn vinstri grænna greinir á um til hvaða aðgerða eigi að grípa til að mæta fyrirséðum ríkissjóðshalla næsta árs. Ögmundur Jónasson og Lilja Mósesdóttir vilja fara aðrar leiðir en flokksforustan. Rík andstaða er gegn því að skattleggja séreignalífeyrissparnað innan vinstri grænna til að stoppa upp í fjárlagagat næsta árs að sögn Björns Vals Gíslasonar.
Ögmundur Jónasson var í viðtali í hádegisfréttum RÚV. Hann segist sammála Lilju og segir einnig... Mín skoðun er sú að við eigum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að til að draga úr niðurskurðarþörfinni einkum innan velferðarþjónustunnar og þá hljótum við að kanna allar leiðir til tekjuföflunnar.... Svar Ögmundar þegar hann er spurður um skoðanir flokksystkina sinna, að þau hljóti að nálgast þetta með opnum huga...(og svo rúsínan í pylsuendanum).....við verðum að horfast í augu við það að við búum við mjög sérstakar aðstæður á Íslandi og sérstakar aðstæður krefjast sérstakra aðgerða. (hádegisfréttir rúv)
Skattar munu hækka eitthvað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 25.5.2010 | 14:32 (breytt kl. 18:09) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tenglar
Mínir tenglar
Tónlist
Ýmislegt
Gestir
Tónlist
- A Glimpse in Time - Gulli Falk ft. Diddú and Stefán Jakobsson
-
Tónlist
-
Elska þig enn. Stefán Jakobsson
youtube