Til hamingju Framsýn, þetta eru vissulega ánægjuleg tíðindi
Aðalsteinn Baldursson er fyrirmyndar formaður og á heiður og virðingu skilið fyrir störf sín í þágu félagsins sem og allt það góða fólk sem með honum vinnur.
Niðurstaðan er birt á heimasíðunni http://www.framsyn.is/
138 eða 98,6% sögðust ánægðir með starfsemi Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík og þar með Framsýnar- stéttarfélags.
Einn skilaði auðu eða 0,7% og einn tók ekki afstöðu til þjónustunnar eða 0,7%.
Af þeim sem tóku afstöðu voru því allir ánægðir með þjónustu stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum sem er frábær árangur ekki síst í ljósi þess að öllum var boðið að taka þátt í könnuninni það er félagsmönnum, atvinnurekendum og öðrum þeim sem leituðu til skrifstofunnar. Þá hefur verkalýðshreyfingin átt undir högg að sækja því samkvæmt könnun sem Markaðs- og miðlunarrannsóknir ehf. gerðu nýlega bera aðeins 25% landsmanna mikið traust til hreyfingarinnar á landsvísu. Þetta viðhorf er greinilega ekki til staðar í Þingeyjarsýslum.
Aðildarfélög Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík munu hér eftir sem hingað til leitast við að veita góða þjónustu og standa vörð um hagsmuni félagsmanna og félagssvæðisins í heild sinni. Þá er full ástæða til þakka Þingeyingum fyrir traustið sem þeir bera til starfsemi stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. 
Um 2000 félagsamenn eru í Framsýn- stéttarfélagi.
|
Nær allir ánægðir með þjónustu Framsýnar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Bloggar | 25.11.2009 | 00:22 (breytt 9.12.2009 kl. 00:21) | Facebook







gattin
hallarut
ingolfurasgeirjohannesson
jon-o-vilhjalmsson
kht
mamman53
molinn
nonniblogg
pallvil
topplistinn
gthg
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning