Já sko ...draumur

Skrítinn draumur sem mig dreymdi í morgunsárið um daginn... ákvað að láta hann flakka Wink

Saga úr sveit, eða þannig...


Það var þetta með hjónin sem voru orðin atvinnulaus, enga vinnu að fá í byggðarlaginu.
Þau bjuggu á fallegum stað og ferðamönnum hafði fjölgað ár frá ári.
Þá datt þeim sú snilldar hugmynd í hug að hafa heimagistingu í húsinu sínu sem var orðið of stórt fyrir þau, ungarnir flognir úr hreiðrinu og þau tvö ein eftir.

Þau gerðu ýmsar breytingar á húsnæðinu og auglýstu gistingu og buðu upp á íslenska kjötsúpu gerða af húsfreyju og að einnig væri hægt að kaupa allskonar minjagripi úr beini og hári eftir bóndann enda einstakur hagleiksmaður.
Þetta virkaði vel og var biðlisti fram í tímann.

Kjötsúpan var annáluð, talin sú besta sem menn höfðu smakkað, leitun að öðru eins og minjagripirnir runnu út eins og heitar lummur, þóttu frumlegir og flottir til gjafa.

Blessuð hjónin höfðu það gott sem aldrei fyrr, voru farin að geta leyft sér eitt og annað.
Enginn virtist heldur taka neitt sérstaklega eftir því  þó að einn og einn ferðamaður virtist týnast á sumrin.

Þessir túristar voru jú alltaf að fara villu síns vegar hvort sem er. Tounge

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hehe....flott skrifaður texti....snilldar saga/draumur ;) hljómar svona eins og einhver hryllingsmynd!

Dóttirin

Guðrún Elísabet (IP-tala skráð) 6.11.2009 kl. 12:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

(netauga)
 (netauga)

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Tónlist

Nýjustu myndir

  • ...ynd_1282031
  • ...235_1282030
  • ...bloggmynd

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband