Fjólublái hatturinn

 

ATT00001_


Lífið snýst ekki um að bíða  alltaf eftir að storminn lægi, heldur að „Læra það hvernig á að dansa í  rigningunni“ !

EF ÉG HEFÐI TÆKIFÆRI TIL AÐ LIFA LÍFINU  AFTUR

*Ég vildi að ég hefði farið í rúmið þegar ég var  veik í stað þess að halda að heimurinn gæti ekki haldið áfram án  mín.

*Ég  vildi að ég hefði kveikt á fallega bleika rósarkertinu í stað þess að láta það  bráðna í hitanum í geymslunni minni. 

*Ég vildi að ég hefði talað  minna og hlustað meira. 
 
*Ég vildi að ég hefði  oftar boðið fólki í mat, jafnvel þó teppið á gólfinu hafi verið blettótt og  sófinn minn slitinn.

*Ég vildi að ég hefði borðað  popp í stáss-stofunni, og haft minni áhyggjur af ruslinu og rykinu sem kom  alltaf þegar við kveiktum á arninum.
 
*Ég vildi að ég hefði tekið  mér tíma til að hlusta á afa minn, þegar hann talaði um æsku  sína.   
 
*Ég vildi að ég hefði  ekki alltaf ákveðið að hafa rúðuna uppi þegar við keyrðum um á fallegum  sumardegi af því að ég vildi ekki láta skemma hárgreiðsluna.
 
*Ég  vildi að ég hefði setið oftar á grasflötinni með grasgrænu í  buxunum.
 
*Ég vildi að ég hefði grátið og hlegið af lífinu sjálfu  í stað þessa að gera það yfir sjónvarpinu.

*Ég hefði aldrei keypt eitthvað bara af því að það var hagkvæmt, eða af því að það entist að  eilífu.
 
*Í stað þess að óska þess að þurfa ekki að ganga með  börnin mín í níu mánuði, myndi ég fagna hverju augnabliki vitandi það að  kraftaverkið sem inn í mér óx,  var eina leiðin mín til að hjálpa Guði að skapa nýtt  kraftaverk.
 
*Í stað þess að segja „seinna,...... farðu og þvoðu þér um  hendurnar fyrir matinn“ við börnin mín, þegar þau komu óvænt til mín og kysstu  mig.. hefðu orðið til fleiri  notarleg orð eins og „mér þykir vænt um þig“ og færri „fyrirgefðu“  orð

*En sérstaklega, ef ég ætti annað tækifæri á að lifa  lífinu, myndi ég njóta hverrar mínútu, lifa lífinu lifandi.

 Og hætta að láta  litlu hlutina sem skipta engu máli – skipta máli !!!

Smile

- by Erma  Bombeck 

(skrifað eftir að hún fékk að  vita að hún væri með ólæknandi krabbamein).

Til minningar um „Women´s  history month“ og til minningar um Ermu Bombeck sem tapaði baráttunni gegn  krabbameini.  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

(netauga)
 (netauga)

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Tónlist

Nýjustu myndir

  • ...ynd_1282031
  • ...235_1282030
  • ...bloggmynd

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband