Ekki brosa....endurnýjun vegabréfs ;-D

Það er kannski ekki í frásögur farandi að þurfa að endurnýja vegabréfið sitt, en það gerði ég í gær þar sem það 10. ára gamla var að falla á tíma og ég vil að eðlislegri fyrirhyggju vera með mitt á hreinu ef ske kynni að að maður þyrfti að bregða sér eitthvað af bæ Wink
Það var samt huggun harmi gegn að nú er nóg að fara bara eina ferð til „sýsla“ úr Mývó til Húsavíkur...... í stað tveggja, sem er að sjálfsögðu sparnaður á tíma og bensíni.

Nú fer fram myndataka á staðnum sem og fingrafarataka og undirskrift.
Margt breytist á 10. árum. Nú mun vegabréfið gilda í fimm ár.... kostar 7700. kr. 
En óskaplega átti ég bágt í myndatökunni Grin ...það má nefnilega ekki brosa eða sýna tennur...heldur betur verður maður að vera eins og fýldur unglingur á „ ekki taka mynd af mér “ skeiðinu !
 Það er ekki að spyrja að því að það þurfti að taka nokkur „ skot “ áður en fulltrúinn var sáttur Angry 

p.s ég fékk ekki eintak til að fara með heim Whistling


Vinur í grennd...

Til umhugsunar, fyrir mig.... og þig....Smile

Í grenndinni veit ég um vin, sem ég á,
í víðáttu stórborgarinnar.
En dagarnir æða mér óðfluga frá
og árin án vitundar minnar.

Og yfir til vinarins aldrei ég fer
enda í kappi við tímann.
Sjálfsagt þó veit hann ég vinur hans er,
því viðtöl við áttum í símann.

En yngri vorum við vinirnir þá,
af vinnunni þreyttir nú erum.
Hégómans takmarki hugðumst við ná
og hóflausan lífróður rérum.

"Ég hringi á morgun", ég hugsaði þá,
"svo hug minn fái hann skilið",
en morgundagurinn endaði á
að ennþá jókst mill´ okkar bilið.

Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk,
að dáinn sé vinurinn kæri.
Ég óskaði þess, er að gröf hans ég gekk,
að í grenndinni ennþá hann væri.

Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd
gleymd´ ekki, hvað sem á dynur,
að albesta sending af himnunum send
er sannur og einlægur vinur.

(höfundur ókunnur)


GLEÐILEG JÓL

006

Ósk um gleðileg jól, með kærri kveðju úr Mývatnssveit Smile


Mætum og syngjum jólalögin saman í Vogafjósi, Mývatnssveit :-)

Mætum og syngjum jólalögin saman í Vogafjósi í Mývatnssveit :-)

Vogadísir (180x135) (2)

Vogadísir munu stíga á stokk og taka nokkur lög.

 Rífið nú af ykkur gúmmíhanskana, hendið svuntunni útí horn, skellið ykkur í sparidressið og komið og syngið með.

Þeir sem að hyggjast koma í kvöldverðinn klukkan 18:00, vinsamlegast munið að panta fyrir klukkan 12:00, föstudaginn 16. des.

Og auðvitað verður söngvatnið á tilboði!

Fögnum og verum glaðir :D
 https://www.facebook.com/#!/vogafjos.gistihus


Dimma !

Er ekki alltaf gaman að hlusta á nýja tónlist ? Í dag kemur Dogma út : ný EP plata frá DIMMU, sem verður til sölu í Smekkleysa Plötubúð  og beint frá Dimmu.

 Þungur Kross er á téðri plötu bæði á ensku og íslensku og hér má heyra Stefán flétta þessar útgáfur listavel saman eins og honum einum er lagið..

Dimma með nýja plötu í dag

...og aðeins meira frá þeim félögum í Dimmu Whistling

https://www.facebook.com/#!/pages/DIMMA/232583429665

Já, ég er bara stolt af þeim Smile finnst sonurinn Stefán standa sig bara ágætlega Whistling


Rússagrýlan dauð...Kínagrýlan tekin við ?

Ótrúleg þessi umræða öll og að mörgu leiti á afar lágu plani.

Huang Nubo er kallaður „ mannskræfa, lítill sem étur allt, nubo létt “ og fleira sem er ekki hafandi eftir. Ekki finnst mér þessi árás á persónu mannsins vera neinum sem er á móti sölunni til framdráttar í málflutingi sínum.

Er ekki hægt að leyfa Huang Nubo að njóta nokkurs sannmælis ?

Huang Nubo. 


mbl.is Olnbogar sig ekki áfram á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Læknaráð mótmælir niðurskurði...og örugglega fleiri !

Ég held að það sé ekkert flóknara en það að við Norðlendingar sem eigum mikið að sækja til þessar frábæru sjúkrastofnunar sem FSA er, hvort sem heldur íbúar á Akureyri eða íbúar hinar dreifðu byggðar nærliggjandi, getum sagt af hjarta:

Við mótmælum öll !!!

Ekki meiri niðurskurð !!!

Sjúkrahúsið á Akureyri


mbl.is Læknaráð mótmælir niðurskurði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slægjufundur í Mývatnssveit :-)

Fyrsta vetrardag, laugardaginn 22. október var haldinn hinn árlegi slægjufundur Mývetninga, sem er gamall og góður siður. Smile

Þorgils gjallandi ( Jón Stefánsson 2. júní 1851-23. júní 1915 ) var upphafsmaður hans.

2e8d4684-b2e0-4706-8b9c-8dc0acc08daf_MS

http://641.is/blog/2011/10/25/548301/

Takk fyrir mig Whistling


Friðlýsing... og Hverfjall skal það vera ;-)

Friðlýsing Dimmuborga og Hverfjalls 22.júní 2011 014

Friðlýsing er í eðli sínu samstarfsverkefni, voru m.a orð Önnu K Ólafsdóttur frá Umhverfisstofnun og gott ef það er haft að leiðarljósi í þessum efnum sem öðrum.

Friðlýsing Dimmuborga og Hverfjalls 22.júní 2011 017

Samkvæmt nokkurra ára gömlum úrskurði hæstaréttar er Hverfjall hið rétta nafn og hitt nafnið þ.e Hverfell sett innan sviga .... ef það væri yfirhöfuð notað aftur.

Þetta veit blessaður fréttaritari...með allri virðingu fyrir honum. Smile


mbl.is Dimmuborgir og Hverfell friðlýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband